Morgunblaðið - 30.10.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1982
33
Þor Vilhjálmsson, Ragnhildur Helgadóttir, Guðmundur Hansson, Jónína Cortes, Finnbjörn Hjartarson, Helga
Jóakimsdóttir, Kristín Zoega, Gísli Guðmundsson, Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Anna Ásgeirsdóttir, Erna Ilauks-
dóttir og Brynhildur Andersen.
Myndir
frá
hátíðar-
móttökunni
I JH 1?, - m
j igs
í jh
Inga Jóna Þórðardóttir, Ólafur G. Einarsson, Guðlaug Ásmundsdóttir, Guð-
laug Thorarensen og Ragna Lára Ragnarsdóttir.
Sigurlaug Bjarnadóttir, Þorsteinn Thorarensen, Kjartan Gunnarsson, Birgir fsl. Gunnarsson, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, Elísabet Kvaran, Guðmundur H. Garðarsson og Matthias Bjarnason.
Sigríður Arnbjarnardóttir, Sigmar Jónsson, Hlíf Jóhannsdóttir, Jónína Michaelsdóttir, Edda Bjarnadóttir, Geir
Hallgrímsson, Erna Finnsdóttir, Friðrik Sophusson og Gústaf B. Einarsson.
Sigríður Hannesdóttir, Elín Sigurðardóttir, Davíð Oddsson, Guðlaug Þorleifsdóttir, Jónas Elíasson, Óskar V.
Friðriksson, Arni B. Eiriksson, Aslaug Friðriksdóttir og Elin Pálmadóttir.
Dagur aldraðra í
Laugarnessókn
NÆSTKOMANDI sunnudag 31.
október verður „Dagur aldraðra" í
Laugarnessókn. Eldri borgurum
sóknarinnar verður þá sérstaklega
boðið til messu kl. 14.00 og í kaffi
strax eftir messu i Laugarnesskóla.
I messunni kl. 14.00 í Laugar-
neskirkju prédikar Margrét Hró-
bjartsdóttir safnaðarsystir. Einn-
ig mun Halldór Vilhelmsson og
tvær dætur hans, Hildigunnur og
Marta, flytja Cantate Domino eft-
ir Buxtehude. — Aldraðir lesa
ritningarorð.
Eftir messu verður kaffi og
skemmtun í Laugarnesskólanum.
Þar mun sr. Pétur Ingjaldsson
fyrrv. prófastur tala og Sólveig
Björling flytja söngdagskrá við
undirleik Gústafs Jóhannessonar.
Þeir sem teldu sig þurfa að fá
aðstoð við að komast í kirkju og í
kaffið á eftir geta fengi það, því
nokkrir bílar verða á ferðinni til
að sækja fólk. Þeir sem vilja not-
færa sér þessa þjónustu geta
hringt í Þorstein Ólafsson í síma
35457, milli kl. 10 og 12 sama dag.
í Laugarnessókn hefur oft verið
haldið upp á dag aldraðra og er
það okkur sérstök ánægja á ári
aidraðra sem nú stendur yfir. Vel
hefur verið vandað til dagskrár-
innar af hendi Kvenfélags Laug-
arnessóknar og Sóknarnefndar og
vonum við að sem flestir geti verið
með.
Jón D. Hróbjartsson,
sóknarprestur.
Halldór
Marta
Hildigunnur
Eiðaskóli
Austfirðinga-
mót 5. nóvember
Austfirðingafélagið í Reykjavík
er elzta átthagafélagið í höfuð-
borginni, stofnað 1904. Starfsemi
þess hefir verið óslitin allar götur
síðan. Félagið hefir lagt lið ýms-
um góðum málefnum heima í
fjórðungi, haldið uppi ákveðnum
þætti í samkvæmislífi borgarinn-
ar, efnt til ferðalaga, ýmiss konar
fræðslu- og skemmtifunda og
fleira mætti nefna. Þó er kannski
ótalinn sá þátturinn, sem sízt er
vert að gleyma, en það er að við-
halda kynnum og tengslum Aust-
firðinga hér syðra innbyrðis og við
heimabyggðirnar.
A seinni árum hafa verið stofn-
uð smærri átthagafélög fyrir
langflest byggðarlög á Austur-
landi. Á sama tíma hefir starfs-
svið Austfirðingafélagsins
breytzt, og Austfirðingamótin ár
hvert hafa orðið gildasti þátturinn
í starfsemi þess.
En félagið er nú að reyna að
víkka starfssvið sitt á ný. Einn lið-
ur í þeirri viðleitni er að efna til
byggðarlagakynninga í máli og
myndum, þar sem gagnkunnugir
menn fjalla um, og fluttur verður
ýmiss konar fróðleikur og sagnir
úr viðkomandi byggðarlögum og
kynnt frumsamið efni eftir menn
þaðan. Ein slík kynning var á sl.
vori, þar sem þrjú syðstu sveitar-
félögin í Suður-Múlasýslu voru
kynnt. Næsta byggðarlagakynning
verður í Sigtúni 24. apríl á næsta
vori, og verða þá kynnt tvö nyrztu
byggðarlögin í Norður-Múlasýslu,
þ.e. Skeggjastaðahreppur og
Vopnafjarðarhreppur.
Austfirðingamótið í ár verður í
Súlnasa) Hótel Sögu fostudaginn 5.
nóvember og hefst með borðhaldi
kl. 19.
Heiðursgestir að þessu sinni
verða prestshjónin í Heydölum í
Breiðdal, frú Anna Þorsteinsdótt-
ir og séra Kristinn Hóseasson.
Dagskrá mótsins verður í aðal-
atriðum á þá leíð, að ávörp flytja
frú Guðrún K. Jörgensen, formað-
ur Austfirðingafélagsins, og frú
Anna Þorsteinsdóttir, Þorlákur
Friðriksson, bóndi á Skorrastað í
Norðfirði, flytur gamanmál, aðal-
lega gamanvísur, og stjórnar al-
mennum söng við undirleik sonar
síns, Ágústs Ármanns, tónlistar-
kennara. Veizlustjóri verður frú
Iðunn Steinsdóttir.
(KróUatilkynninn)