Morgunblaðið - 30.10.1982, Blaðsíða 32
32
—
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1982
gangskör
Umsjón:
Asdís J. Rafnar
Anna Ásgeirsdóttir
Erna Hauksdóttir
Ávarp formanns Hvatar
Bessíar Jóhannsdóttur á hátíöarmót-
töku í Valhöll laugardaginn 23. október
Konur selja bókina „Frjáte hug.sun — fretei þjóðar“. Talið frá vinstri: Unnur Jónasdóttir gjaldkeri Hvatar, Anna
Júlíusdóttir, Anna Borg framkvæmdastjóri Hvatar og Þórunn Júlíusdóttir.
Bessí Jóhannsdóttir formaður Hvatar afhendir Auði Auðuns fv. ráðherra
heiðursskjal Hvatar.
Góðir hátíðarjíestir!
Þrennt er tilefni þess að við er-
um hér saman komin í daj;.
1. 45 ára afmæli Hvatar á árinu.
2. Utkoma afmælisrits félagsins,
sem ber heitið Frjáls hugsun —
frelsi þjóðar.
3. Stjórn Hvatar hefur kjörið Auði
Auðuns fv. ráðherra heiðursfél-
aga Hvatar og verður henni hér
á eftir afhent skrautritað heið-
ursskjal.
Hvöt var stofnuð 19. febrúar
1937, oj; voru 315 konur stofnendur
félaj;sins. Höfuðmarkmið félagsins
hefur frá upphafi verið: „að berjast
fyrir þjóðlejjri oj{ víðsýnni umbóta-
stefnu með haj{smuni allra stétta
oj; ofluj;a sameininj;u þjóðarinnar
fyrir auj;um. Grundvöllur stefnu
þess er frelsi oj; sjálfstæði þjóðar
oj; einstaklinj;a, séreignaskipulag
oj; jafnrétti allra þjóðfélaj;sþej;na.
Markmiði þessu hyj;j;st félagið
ná með því að fyljda eindregið
Sjálfstæðisflokknum að málum,
styðja hann við kosningar og vinna
að hugsjónum hans.“ Annað aðal-
markmið Hvatar er „að stuðla að
aukinni þátttöku kvenna í stjórn-
málum, sérstaklega sem fulltrúar í
borgarstjórn eða á Alþingi".
Flest verkefni Hvatar hafa frá
stofnun tekið mið af þessum
stefnumálum, þó má sejya að félag-
ið hafi í mörgu haft sterkari ein-
kenni almenns kvenfélags en
stjórnmálafélags. Félagið hefur
virkjað mikinn fjölda kvenna til
starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
átt sinn þátt í vinsældum sjálf-
stæðisstefnunnar meðal kvenna. —
Því er það nú þegar fram koma
sérlistar kvenna, að sjálfstæðis-
menn þurfa að staldra við, og gera
úttekt á sínum málum. Laðar
Sjálfstæðisflokkurinn konur ekki
nægilega til starfa? Það er vissu-
lega alvarlegt mál að konur finni
sig knúnar til að stofna sérstakan
kvennaflokk. í þingliði sjálfstæð-
ismanna er nú aðeins ein kona, Sal-
ome Þorkelsdóttir. Það má sejya að
það hafi heyrt til undantekninga að
þær væru fleiri. Til dæmis var al-
veg sérstakt að á tímabili voru þær
þrjár á þingi, Ragnhildur Helga-
dóttir þingmaður og varaþing-
mennirnir Geirþrúður Hildur
Bernhöft og Sigurlaug Bjarnadótt-
ir.
Það var talsverður áfangi þegar
það náöist að fá þrjár konur í aðal-
sæti á lista flokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar í vor, þær
Ingibjörgu Rafnar, Huldu Valtýs-
dóttur og Katrínu Fjeldsted. Þær
sýndu það í kosningabaráttunni, að
konur eru engir eftirbátar karla ef
þær aöeins fá tækifæri til að takast
á herðar þær skyldur sem þeim ber.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar
að halda sínum hlut meðal kjós-
enda þarf hann m.a. að stuðia að
aukinni þátttöku kvenna í stjórn-
málum. Við Hvatarkonur erum til-
búnar til viðræðna um þau mál
hvenær sem er. Við lítum ekki á
þetta sem einkamá! kvenna heldur
eru hér hagsmunir flokksins það
miklir, að forustumenn hans eiga
að hafa frumkvæði um leiðir til úr-
bóta.
Hvöt hefur á tveimur árum stað-
ið að útgáfu þriggja bóka: „Fjöl-
skyldan í frjálsu samfélagi" og „Auð-
arbók Auðuns“ í samvinnu við
Landssamband sjálfstæðiskvenna
og nú afmælisrit félagsins Frjáls
hugsun — frelsi þjóðar.
I ritnefnd afmælisritsins voru
Björg Einarsdóttir, formaður,
Anna Arnbjarnardóttir, Ásdís J.
Rafnar, Ólöf Benediktsdóttir og
Ragnhildur Helgadóttir. Auk þess
störfuðu með nefndinni Auður
Auðuns og Ragnhildur Pálsdóttir
við öflun mynda, sem eru yfir sex-
tíu í bókinni. Anna Arnbjarnar-
dóttir tók saman ítarlegar skrár
yfir stjórnir félagsins frá stofnun
þess.
Efni bókarinnar skiptist í tvo
meginkafla: „í félags- og stjórn-
málastarfi" og „Menntun og vinnu-
markaður".
í fyrri hlutanum ritar Ólöf Bene-
diktsdóttir um fyrstu ár Hvatar og
Bessí Jóhannsdóttir um Hvöt í nú-
tíð og framtíð. Elín Pálmadóttir
ræðir við nokkra frumherja í fé-
lagsstarfinu og birt er kosninga-
stefnuskrá Guðrúnar Lárusdóttur
frá 1930.
Fimm sjálfstæðiskonur fjalla um
menntun og vinnumarkað í síðari
hluta bókarinnar. Áslaug Frið-
riksdóttir skólastjóri rekur bygg-
ingarsögu skóla í Breiðholti.
Katrín Fjeldsted læknir ritar um
einstaklinginn og skólakerfið og
Sigríður Arnbjarnardóttir kennari
um markmið og leiðir í menntun.
Árdís Þórðardóttir hagfræðingur
setur fram hugmyndir sínar um
mannauð og mannvirkjun og Dögg
Pálsdóttir lögfræðingur ritar um
kjarasamninga. Ragnhildur Helga-
dóttir varaþingmaður tók saman
nokkur dæmi úr tillögum og ræð-
um nokkurra Hvatarkvenna á al-
þingi og í borgarstjórn, þar sem
þær fjalla um efni, sem tengt er
tema bókarinnar.
Þessi bók er framlag Hvatar í
stjórnmálaumræðu liðandi stund-
ar.
Ég vil þakka öllum þeim, sem
áttu þátt í tilurð þessarar bókar,
höfundum greina og starfsmönnum
Isafoldarprentsmiðju, sem sýndu
mikla þolinmæði og lipurð. Ég vil
sérstaklega þakka ættingjum
Maríu Maack og Guðrúnar Guð-
laugsdóttur fyrir myndir sem fé-
laginu voru gefnar og okkur er
fengur að eignast.
Fimm konur hafa verið kjörnar
heiðursfélagar í Hvöt. Þær eru: Guð-
rún Jónasson árið 1955, Guðný
Björnæs árið 1957, Guðrún Pét-
ursdóttir árið 1957, Maria Maack
árið 1967 og Gróa Pétursdóttir árið
1972.
Stjórn Hvatar hefur kjörið frú
Auði Auðuns fv. ráðherra heiðurs-
félaga i Hvöt. Frú Auður var for-
maður Hvatar 1967—’68, en hafði
áður verið varaformaður 1961—’67
og meðstjórnandi 1946—'61. Hún
hefur jafnan verið í fararbroddi, og
við lítum til hennar með aðdáun og
virðingu. Vil ég biðja frú Auði að
koma hér og taka við heiðursskjali
frá okkur Hvatarkonum:
Að lokum vil ég vitna í grein
mína: „Hvöt í nútíð og framtíð," í
afmælisriti okkar.
„Tímamót eru kjörin til að
staldra við og líta til baka, meta
árangur og velta fyrir sér framtíð-
armarkmiðum og leiðum. Við
Hvatarkonur erum stoltar af félag-
inu okkar. Við teljum það geta og
hafa stuðlað að aukinni þátttöku
kvenna í starfi Sjálfstæðisflokks-
ins, þótt þess gæti ekki sem skyldi í
forystustörfum innan flokksins.
Því miður er ekki ólíklegt að þar
hafi oft skort á metnað kvennanna
sjálfra til slíkra starfa. Það verður
að vinna bug á þeim beyg sem
mörgum dugandi konum stendur af
leiðtogahlutverki og áberandi
ábyrgðarstörfum. Það hlýtur að
vera eitt af meginverkefnum Hvat-
ar. Við leggjum áherslu á að, hver
einstaklingur geti valið sér vett-
vang, sem honum hæfir, án tillits
til kynferðis. Það var m.a. með
þetta í huga sem við völdum okkur
að kjörorði á bókamerki félagsins:
„Einstaklingsfrelsi er jafnrétti í
reynd“.“ Bessí Jóhannsdóttir
Félagsfundur um stöðuna í
íslenskum stjórnmálum
í Valhöll, þriðjudaginn
2. nóv. kl. 20.30
Dagskrá:
1. Kosning 3ja manna kjör-
nefndar vegna aöalfundar
Hvatar.
2. Ræður:
Staöan í íslenskum
stjórnmálum.
Ræðumenn:
Friörik Sophusson, vara-
formaöur Sjálfstæðis-
flokksins. Salome Þor-
kelsdóttir, alþingismaöur.
Kaffiveitingar.
Stjórnin
FRJÁLS HUGSUN — FRELSI ÞJÓÐAR
Frjáls
hugsun-
frelsi
þjóðar
Bókin er til afgreiðglu i Valhöll,
Háaleittebraut I.
Fyrstu ár HvaUr
Ólöf Benediktadóttir
Skóli elítur barne-
skónum í Breiðholti
Áslaug Friðriks-
dóttir
Menntun:
Markmið — leiðir
Sigríður Arnbjarn-
ardóttir
Bók
sem
vekur
athygli
Hvöt í nútíð Mannauður —
og framtíð Mannvirkjun
Bessí Jóhannsdóttir Árdís Þórðardóttir
Kinstaklingurinn Uikmannsþankar
og skólakerfíð um kjaraaamninga
Katrín Fjeldsted °ögg Pálsdóttir